Árni Einarsson

Árni og Guðfinna.
Árni og Guðfinna.

Árni Einarsson var bóndi á Vilborgarstöðum. Hann tók sæti á Alþingi árið 1861 og sat það þing sem varamaður séra Brynjólfs Jónssonar prests að Ofanleiti sem ekki gat mætt til þings það ár. Árni var fæddur á Vilborgarstöðum í Vestmannaeyjum þann 12. júní 1824 og lést í Reykjavík þann 19. febrúar 1899.

Foreldrar Árna voru Einar Sigurðsson (f. 1768, d. 18. mars 1852) bóndi á Vilborgarstöðum og Vigdís Guðmundsdóttir (fædd 1781, dáin 8. maí 1854). Árni kvæntist þann 15. nóvember 1848 Guðfinnu (fædd 1823, dáin 7. apríl 1897) dóttur Jóns Austmanns prests í Vestmannaeyjum og Þórdísar Magnúsdóttur. Árni starfaði sem útvegsbóndi á Vilborgarstöðum og formaður frá 1852 til æviloka. Hann stundaði jafnframt húsasmíðar og gegndi störfum hreppstjóra.

Sjá nánari upplýsingar um Árna í Bliki frá árinu 1967, Blik 1967/II. Árni meðhjálpari Einarsson


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...