Ásdís Jónsdóttir var úr Berufirði eystra. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson bóndi í Gautavík og Núpshjáleigu og k.h. Þórdís Einarsdóttir.
Í Ættum Austfirðinga er Ásdísi svo lýst, að hún hafi verið „smá vexti, fjörmikil, dugleg og myndarleg, góð í sér og hjálpsöm, læknir og yfirsetukona í viðlögum.“
Fyrri maður Ásdísar var Anders Asmundsen, norskur maður, sem varð skipstjóri á hákarlaskipi í Eyjum og fórst með því. Við hann er kennt Andersarvik. Þar bjargaði hann barni frá drukknun og var vikið kennt við hann síðan.
Þau Ásdís og Anders voru móðurforeldrar séra Jes A. Gíslasonar, foreldrar Soffíu.
Seinni maður Ásdísar var Árni Diðriksson í Stakkagerði-Eystra. Dóttir þeirra var Jóhanna, sem giftist Gísla Lárussyni.
Sjá Blik 1965/Ásdís Jónsdóttir, húsfreyja í Stakkagerði.
Heimildir
- Ættir Austfirðinga eftir Einar Jónsson, bls 1172-1173. Reykjavík: Austfirðingafélagið í Reykjavík 1962.
- „Örnefni í Vestmannaeyjum.“ Reykjavík: Hið íslenzka þjóðvinafélag, 1938.
- Örnefnaskrá Gísla Lárussonar.