Sjá Þórshamar við Vestmannabraut fyrir annað hús sem ber nafnið „Þórshamar“
Húsið Þórshamar stendur við Vestmannabraut 28. Þorsteinn Johnson frá Jómsborg byggði húsið sem var kallað Nýja bíó áður fyrr í daglegu tali. Margs kyns starfsemi var í húsinu, svo sem kvikmyndasýningar og skemmtanir, ásamt verksmiðjurekstri og prentsmiðju auk þess sem það var síðar meir notað sem geymsluskemma. Húsið hrundi í gosinu 1973 en var endurbyggt eftir gos (1975) og hýsir nú Hótel Þórshamar og veitingastaðinn Fjóluna. Húsið var svo endurbætt 1987.
Heimildir
- Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.
Copyright © Vestmannaeyjabær 2005