Þúsund eldar

Þjóðhátíðarlag
1994 1995 1996
Hér lifa þúsund eldar,
loga lífsins tré.
Ég man þig bjarta meyja,
margar stjörnur sé.
Ég þig mun ætíð elska,
alla mína tíð,
komdu vina,komdu fljótt,
kæra þjóðhátíð.
Viðlag:
Þú eyjan mín ætíð fögur ert,
þín fegurð skær en hvergi skert
þótt margra alda sért.
Sæl er saga þín­, sæl er fjallasýn.
Ég þrái þig, mig þyrstir,
þor'að tendra bál,
ég þarfnast þín, ég þjóra
þjóðhátíðarskál.
Hér ljóma ótal andlit,
æskan undurfríð,
þótt falli klettar, fjúki gjall,
fæ ég þig um síð.
Lag: Þorvaldur Guðmundsson
Texti: Sigurður Óli Hauksson
Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...