Afapollur

Afapollur
Afapollur

Afapollur var hraunbolli í urðunum neðan við Þurrkhúsið, talið er að í einhverju austan fárviðri hafi sjórinn skilið eftir stærðar blágrýtisstein í bollanum miðjum. Þetta litla lón náði aldrei að þorna milli flóðs og fjöru og á góðum sumardegi var jafnvel ylur í sjávarpollinum, enda vinsælt að leika sér þarna með eða án leyfis.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...