August Ferdinand Schneider

August Ferdinand Schneider var settur héraðslæknir í Vestmannaeyjum frá 1845 til 1848. Hann nam læknisfræði við Kaupmannahafnarháskóla og lauk þaðan prófi 1845. Á árunum 1841 til 1843 vann Schneider sem læknir á hvalveiðiskipi. Hann var svo skipaður héraðslæknir í Vestmannaeyjum árið 1845, en starfaði hér mjög stutt. Schneider fékk lausn frá embætti 2. september 1847 og fluttist aftur til Danmerkur.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...