Bjarni Sveinsson, Hvanneyri, fæddist að Melhól í Meðallandi þann 14. nóvember 1877 og lést 28. júní 1966.
Bjarni kom til Vestmannaeyja árið 1906 sem sjómaður á sexæringnum Elliða, en varð fljótt vélamaður. Árið 1920 hóf hann formennsku á Ásu, sem hann lét smíða og hafði hann formennsku á henni allt til 1930. Þá hætti hann formennsku og lærði járnsmíði og vann við það lengi vel.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
- Viðbætur við heimildir: Gísli Eyjólfsson fráBessastöðum
Copyright © Vestmannaeyjabær 2005