Blik 1941, 1. tbl/Fréttir

Efnisyfirlit 1941


FRÉTTIR.


I. Mikil veikindi hafa geisað í bænum að undanförnu. Um tveggja vikna skeið af febrúar var skólanum okkar lokað og fellt niður nám. Það hefir því orðið að herða róðurinn við námið nú í seinni tíð meir en nokkru sinni fyrr, svo að það er þrautabarningur, að okkur þykir mörgum. En áfram skal það, og við viljum ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Um páska hefst prófið og þá nýtur maður þess, ef dyggilega og sleitulaust hefir verið starfað að vetrinum. Þannig lítum við á það að minnsta kosti.

II. Nú er kominn vorhugur í okkur krakkana, og knettirnir komnir á loft. Hvern dag leikum við handknattleik á leikvelli skólans undir stjórn og hvatning kennara okkar. Já, það er vorhugur úti og vorhugur inni, já, „það er sól úti, sól inni, sól í hjarta, sól í sinni“ hjá okkur, þótt skyggi í álinn á milli og dökk námsský dragi á loft.

III. Í fyrravetur ákvað fræðslumálastjórnin að láta fram fara landspróf eða yfirlitspróf í nokkrum námsgreinum í gagnfræða- og héraðsskólum landsins. Prófin voru þreytt í 5 námsgreinum. Þær voru þessar: Íslandssaga, íslenzka, bókmenntasaga, réttritun og reikningur. Rétt þykir BLIKI að gefa Eyjabúum dálitla hugmynd um, hvað einkunnaskýrslur fræðslumálastjórnarinnar um þetta próf segja um gagnfræðaskólann okkar borinn saman við aðra gagnfræðaskóla í landinu.
Heildarniðurstöður eru á þessa leið um Gagnfræðaskólann hér:

AðaleinkunnEinkunnHvar í röðinni
Í íslenzku5,543.
Í Íslandssögu7,191.
Í bókmenntasögu5,833.
Í réttritun6,972.
Í reikningi5,331.

Héraðsskólarnir fá yfirleitt betri útkomu úr fjórum fyrstu námsgreinunum en gagnfræðaskólarnir, enda eldri og þroskaðri nemendur í þeim skólum. Gagnfræðaskólinn okkar hefir hæsta einkunn í reikningi af öllum héraðs- og gagnfræðaskólunum.

A + B + F fréttaritarar.
————————

Hérna um daginn tóku skólapiltarnir saman ráð sín, um að kjósa sér nú fegurðardrottningu. Og eftir að hafa svo horft sig rangeygða á hinn fríða skara skólasystra sinna, fóru þeir að gramsa í hjörtum sínum og bar þá mest á mynd Elísu litlu. Svo nú gengur hún um sem fegurðardrottning skólans. En strákarnir bíða þess með eftirvæntingu, hver kosinn verði fegurðarkóngur.



Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...