Blik 1947/Eyjatíðindi

Efnisyfirlit 1947


EYJATÍÐINDI
I.

Frá skólanum
1. febr. þ.á. minntust nemendur bindindisstarfsins í skólum landsins. Skólinn hafði boðið stúkunum Báru og Sunnu að senda ræðumenn í skólann þennan dag kl. 11 f.h., því að tíminn 11–12 skyldi helgaður bindindisstarfi skólaæskunnar.

Þessir gestir heimsóttu skólann frá st. Báru nr. 2: Síra Halldór Kolbeins, frú |Lára Ólafsdóttir og Óskar Jónsson kennari. Frá st. Sunnu nr. 204 þessir gestir: Árni Johnsen kaupm., Stefán Árnason yfirlögregluþjónn og Páll Eyjólfsson forstj. Allir gestirnir fluttu stuttar en góðar ræður, sem var vel fagnað af nemendum. Þá töluðu þessir nemendur: Páll Steingrímsson III. b., Anna Tómasdóttir, II. b. og Haraldur Baldursson I. b.

Síðast talaði skólastjórinn.

Um kvöldið héldu nemendur ársfagnað Menningarfélags skólans og sáu kennararnir um öll skemmtiatriði. Til skemmtunar var upplestur, kvikmyndir og samlestur á leikþætti. Síðast var svo dansað til kl. 3 um nóttina.
Umsjónarmenn skólans eru þessir: Óskar Ketilsson, III. b., Einar Valur Bjarnason, II. b. og Guðmundur Helgason, I. b.

Hringjari skólans er Óskar Þór Sigurðsson.

Kennarar skólans hafa fest kaup á kvikmyndavél handa skólanum. Hún kostar nær 5 þúsundir króna. Þessa vél ætla þeir að láta skólann eignast án fjárframlaga frá bæjarsjóði eða ríki með því að afla sjálfir fjár til þess að greiða vélina.

21. febr. s.l. hófu nemendur skólans að grafa fyrir veggjum hins nýja skólahúss. Nemendur III. bekkjar hófu starfið, stúlkur og piltar, og unnu frá kl. 9.30, f.h. til kl. 3 e.h. Næsta dag unnu þar nemendur I. b. og þriðja daginn nemendur II. b. Skólastjóri stjórnaði verkinu og vann með nemendum. Vinnugleði ríkti í starfinu og mikill áhugi.

Góð gjöf.

Á s.l. hausti gaf Stefán Helgason Gagnfræðaskólanum smásjá. Skólinn þakkar þá velvild og hugulsemi.


II.

Sitt af hverju héðan frá 1946:

Fiskveiðarnar:

Mánuður Útflutt 1946, kg. Til hraðfrystihúsa 1946, kg.Samtals kg.
Febrúar 1.745.025 302.9782.048.003
Marz 2.232.534 736.3672.968.901
Apríl3.069.7051.328.1784.397.883
Maí 2.105.303463.2782.568.581
Júní82.551376.239458.790
Júlí10.920286.116297.036
Ágúst181.152181.152
September81.70581.705
Október42.85042.850
Nóvember81.79081.790
Desember58.65858.658
Alls9.246.036 kg.3.939.311 kg13.185.349 kg
Verðmæti, ísvarinn fiskurkr. 6.621.363,84
Verðmæti, til hraðfrystihúsaKr. 2.528.438,77
Verðmæti, samtals Kr. 9.149.802,61
Ísfisksamlagið.

Af öllum ísfiskútflutningi landsmanna, sem fluttur var út í flutningaskipum á árunum 1942-1944, nam fiskmagnið héðan frá Eyjum sem hér segir:

Ár  % af heildar útflutningi landsmanna Fjöldi ísfiskfarma
1942 16,6% 129
1943 17,9%102
1944 21,7% 125
J.Þ.J.

Áfengisneyzla í Vestmannaeyjum:

Ár Kr.
1945 1.085.626,00
1946 1.299.083,00

Mannfjöldi, fædd börn, fermd börn, hjónavígslur, dánir í Vestmannaeyjum Mannfjöldi::

1946 Karlar KonurAlls
1. nóv.1.725 1.7553480

Fædd börn:

Fæðingar piltar stúlkurSamtals
1946 51 53104

Fermd börn:

Fermd stúlkur piltarSamtals
1946 32 4072

Hjónavígslur:

1946 9 alls

Dánir:

Ár Konur KarlarSamtals
1946 81422

Frá Bátaábyrgðarfélagi Vestmannaeyja

Ár BátafjöldiSamtals smálestirSamtals hestöflHeildarverðmæti, kr.
1946 71 5315192211.847.250,00

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...