Einar Runólfsson (formaður)

Einar Runólfsson fæddist 25. desember 1918. Hann var formaður á Ísleif. Einar bjó á Fífilgötu 2. Einar býr nú í Kópavogi.

Loftur Guðmundsson orti formannavísu um Einar:

Einar af keppni æskumanns
Ísleifi af hrönnum beitir
aflasæld og heppni hans
hróðurinn með réttu veitir.

Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Einar:

Einar Runólfs reiðan sæ
rennir lýð til bjargar,
happa ferðir hefur æ
hann á sjónum margar.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Breiðastan vigginn veiði
veit ég með Sídons heiti.
Einar ég glöggan greini
getinn Runólfi metinn.
Færir bússuna bæru,
buðlungur rastar, slunginn
banka á hyljung hankar
höldurinn frægur öldu.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...