Fiska- og náttúrugripasafnið

Hús Náttúrugripasafns Vestmannaeyja við Heiðarveg.
Hús Náttúrugripasafns Vestmannaeyja við Heiðarveg.

Safnið var stofnað árið 1964 og var Friðrik Jesson fenginn til þess að sjá um það. Safninu er skipt upp í þrjá sali: fugla-, fiska- og steinasafn. Friðrik hefur séð um að stoppa upp flest alla fugla og fiska sem eru til staðar á safninu.

Núverandi forstöðumaður safnsins er Kristján Egilsson og er safnið opið alla daga frá klukkan 11-17 á sumrin en frá klukkan 15-17 á sunnudögum á veturna.

Fuglasafn

Þarna má finna flesta þá fugla sem verpa á Íslandi uppstoppaða, auk allmargra flækingsfugla. Einnig eru þarna egg nær allra íslenskra varpfugla. Þó að þetta sé kallaður fuglasalur er nokkuð af uppstoppuðum fiskum og krabbdýrum í honum, svo sem sjaldséðum djúpsjávarfiskum. Hluti þess er fenginn frá Náttúrugripasafni Eyjabúa, sem var deild í Byggðasafninu.


Fiskasafn

Auglýsing frá árinu 1967.
Auglýsing frá árinu 1967.

Í þessum sal eru 12 ker sem geyma allar helstu tegundir nytjafiska sem veiðast hér við land, auk krabba, krossfiska, sæfífla og skeldýra. Í kerjunum er 6°C heitur sjór, sem dælt er úr borholu skammt frá safninu og er sá sjór því tandurhreinn.

Steinasafn

Þar er hægt að finna alls konar tegundir skrautsteina sem fundist hafa hér á landi. Flestir þessir steinar eru gjöf hjónanna Unnar Pálsdóttur og Sveins Guðmundssonar, Arnarstapa í Vestmannaeyjum, til Vestmannaeyjabæjar og var Náttúrugripasafninu falin varsla þeirra.



Tenglar


Heimildir

  • Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja. Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja [Bæklingur]. Vestmannaeyjar.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...