Friðrik Jónsson, Látrum, fæddist 6. desember 1868 í Eyjarhólum í Mýrdal. Kona hans var Sigurína Katrín Brynjólfsdóttir. Á meðal barna þeirra voru Ármann , Brynjólfur Kristinn, Klara, Guðjón, Ólafía og Sigurína.
Hann fluttist til Vestmannaeyja upp úr aldamótunum 1900. Árið 1907 kaupir hann Heklu með fleiri mönnum og hóf formennsku á henni 1912. Þá kaupir hann annan bát, Íslending og hóf formennsku á honum 1914.
Friðrik byggði húsið Látur við Vestmannabraut árið 1909.
Friðrik lést 29. október 1940.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
Copyright © Vestmannaeyjabær 2005