Guðjón Þorleifsson

Guðjón ásamt systkinum sínum
Guðjón ásamt systkinum sínum
Alda, Laufey og Anna Guðjónsdætur
Alda, Laufey og Anna Guðjónsdætur

Guðjón Þorleifsson, Fagurhól, fæddist 6. maí 1881 í Mýrdal og lést 20. mars 1964. Tvítugur fór Guðjón til Vestmannaeyja og hóf sjóróðra á opnu skipi. Var vélstjóri á Kára VE 123 1908-1910, tók þá við formennsku og var með Kára í 12 ár 1911-1922. Hætti þá sjómennsku og snéri sér að smíðum.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Viðbót við heimildir Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...