Guðjón Kristinsson

Guðjón Kristinsson fæddist 29. nóvember 1917 og lést 28. mars 1975. Hann bjó á Hvoli við Urðaveg 17 og síðar á Vesturvegi. Hann var oftast kenndur við heimili sitt Hvol, en einnig við æskuheimilið Miðhús-vestri. Kona hans var Kristín Ólafsdóttir og áttu þau fjögur börn.

Guðjón var skipstjóri og útgerðarmaður, m.a. á Hrauney VE.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðjón:

Kristinsson Guðjón gistir
glæstum á bakka næsta.
Jón Stefáns lætur lóna
laginn um æstan sæinn.
Stórhuga stýris-Þórinn
stífur inn þorskinn drífur,
frökk þó að Rán í rökkri
rökk hýði fríðan nökkva.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...