Guðmundur Tómasson

Guðmundur Tómasson, Bergsstöðum, fæddist í Landeyjum þann 24. júní 1886. Guðmundur byrjaði ungur sjómennsku og var á fyrstu mótorbátunum eins og á Ingólfi með Guðjóni Jónssyni á Sandfelli og fleiri bátum. Formennsku byrjaði Guðmundur árið 1912 á Víking. Síðan tók hann við Marz og var með hann til ársins 1921. Eftir það var Guðmundur með hina ýmsu báta næstu áratugina á eftir. Hann var á sjó í rúmlega 60 ár og þar af formaður í 50 ár.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðmund:

Gvendur traustur Tómasson
telur margan róður.
Ennþá girnist afla von
arkar stjórinn góður.

Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...