Guðni Jónsson

Guðni Jónsson, Vegamótum, („Guðni í Ólafshúsum“), fæddist 6. júní 1903 í Ólafshúsum í Vestmannaeyjum og lést 12. febrúar 1944. Foreldrar hans voru Jón Jónsson og Elín Sigurðardóttir. Kona Guðna var Anna Eiríksdóttir frá Vegamótum og börn þeirra Eiríkur, Jón Bergur, lézt á öðru ári, Sigurbjörg, Gylfi, og Hjálmar.

Eftir fermingu hóf Guðni sjómennsku á vélbátum, lengst af á Karli hjá Ólafi Ingileifssyni. Formennsku byrjaði Guðni árið 1925 á Gideon. Eftir það var hann meðal annars með Karl, Frigg og Njörð sem hann fórst með 12. febrúar 1944 ásamt allri áhöfn í aftakaveðri suðvestur af Einidrangi.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Pers.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...