Guðríður Bjarnadóttir fæddist 28. febrúar 1875 og lést 3. september 1950. Foreldrar hennar voru Bjarni Ólafsson sjómaður og Ragnheiður Gísladóttir, ábúendur í Svaðkoti.
Hún var gift Jóni Jónssyni, syni Jóns Jónssonar hreppstjóra.
Þau eignuðust 5 börn, Bjarna f. 1896, dó ungur, Jónu Jóhönnu, f. 1899, dó í Canada , Bjarneyju Ragnheiði f. 1905 í Canada, Jónu Jóhönnu f. 1907, d. 2005 og Ólaf Gunnstein f. 1911, d. 1984.
Jón og Guðríður hófu búskap í Svaðkoti hjá móður Guðríðar, en byggðu síðan nýtt Svaðkot á svipuðum stað og Suðurgarður stendur núna. Þetta var lítið einlyft hús.
Jón og Guðríður fluttu til Kanada um aldamótin og bjuggu í Selkirk. Þau fluttu aftur heim árið 1907 og byggðu Brautarholt við Landagötu 3b árið 1908.
Guðríður er heimildarmaður að nokkrum sögnum í Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum, safnað af Jóhanni Gunnari Ólafssyni.