Guðsteinn Þorbjörnsson

Guðsteinn Ingvar Þorbjörnsson fæddist 6. september 1910 og lést 14. febrúar 1995. Hann bjó á Vesturvegi 15b, Reynifelli. Hann var formaður á mótorbátnum Unni.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðstein:

Guðsteinn heitir arkar ás,
ýtinn sjós á grunni.
Dragnótar þá dregur lás,
drjúgan hleður Unni.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...