Gunnlaugur Sigurðsson fæddist 28. september 1883 að Efrahvoli í Rangárvallasýslu og lést 20. apríl 1965. Eiginkona hans hét Elísabet Arnoddsdóttir.Þau bjuggu á Gjábakka, þeim vestri.
Formennsku byrjaði Gunnlaugur árið 1923 á Skuld sem hann átti með fleiri mönnum. Formennsku á henni hafði hann til ársins 1935. Eftir það hætti Gunnlaugur formennsku en stundaði sjómennsku í yfir 40 ár.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
Copyright © Vestmannaeyjabær 2005