Hjálmar Jónsson fæddist 26. júní 1921 og lést 16. febrúar 1978.
Hjálmar var skipstjóri og ævinlega kenndur við heimili sitt, Enda við Vesturveg..
Óskar Kárason samdi formannavísu um Hjálmar:
- Hjálmar á fálur fara
- fjarkanum Erling slarkar,
- Kári, þó klár í fári,
- kjól veiða þéttan róli.
- Byrjaður stjóra styrinn,
- stinnur í annað sinni,
- krækinn í krókling sækir,
- kenndur við hlíðar enda.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
Copyright © Vestmannaeyjabær 2005