Efnisyfirlit |
Fyrirsagnir
Þegar að fyrirsagnir eru orðnar ákveðið margar kemur sjálfvirkt efnisyfirlit ofarlega á síðunni, rétt ofan við fyrstu fyrirsögn. Það er mjög gott að skrifa inngang ofan við fyrstu fyrirsögn, sem efnisyfirlitið kemur þá neðan við.
Leturgerðir
Mismunandi leturgerðir má nota til þess að leggja áherslu á texta. Sjá leiðbeiningar um mál og stíl fyrir reglur um notkun þeirra.
| Þú skrifar: | Þetta birtist: |
|---|---|
Venjulegur texti | Venjulegur texti |
''Skáletraður texti'' | Skáletraður texti |
'''Feitletraður texti''' | Feitletraður texti |
'''''Feitletraður og skáletraður texti''''' | Feitletraður og skáletraður texti |
<s>Gegnumstrikaður texti</s> |
Tenglar
Wiki Wiki tæknin byggir algjörlega á tenglum. Það er grundvallaratriði að geta í fljótu bragði tengt tvær greinar saman, og rakið sig upp í gegnum málefnin. Svona er það gert:
| Þú skrifar: | Þetta birtist: | |
|---|---|---|
[[Tengill]] | Tengill | Vísar í grein sem heitir Tengill. ATH að ef að greinin sem vísað er í er til er hlekkurinn blár, annars er hann rauður. |
[[Tengill|Með öðrum texta]] | Með öðrum texta | Vísar í grein sem heitir Tengill, en textinn sem lýsir tenglinum er öðruvísi. Þetta má nota til þess að fallbeygja, t.d. |
[http://www.slod.is Slóð] | Slóð | Vísar í vefsíðuna www.slod.is með textanum Slóð. |
[http://www.slod.is] | [1] | Vísar í vefsíðuna www.slod.is með raðnúmeri tengilsins. Þetta er þægilegt upp á heimildaskráningar, t.d. |
Copyright © Vestmannaeyjabær 2005