Jóhann Pálsson

Jóhann til hægri ásamt Ásmundi Guðjónssyni.
Jóhann til hægri ásamt Ásmundi Guðjónssyni.

Jóhann Pálsson fæddist 23. apríl 1909 og lést 16. febrúar 2000. Foreldrar Jóhanns voru Páll Sigurðsson og Jónína Þórðardóttir. Hann ólst upp til 19 ára aldurs í Mýrdalnum. Eiginkona Jóhanns var Ósk Guðjónsdóttir frá Oddsstöðum. Þau giftust 2. nóvember 1935 og eignuðust fjögur börn; Guðrúnu, Ragnhildi, Steinar og Herjólf. Þau bjuggu að Helgafellsbraut 19. Í gosinu árið 1973 fluttu þau til Reykjavíkur og bjuggu þar til æviloka. Þar vann hann hjá Landsbanka Íslands.

Jóhann Pálsson var formaður og aflakóngur nokkrum sinnum fyrir miðja síðustu öld.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Jóhann:

Jói Páls á öldur Áls
ýtir Bláatindi,
Sjói Hálsar, fyrður frjáls,
fleyi lá þó hrindi.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Jóhann Páls kólgur kannar
kvaðalaust vel án skaða.
Hannes lóðs hringinn hranna
hraðgengan lætur vaða.
Nýr er sá drekinn dýri,
dæmdur honum til sæmdar.
Freklega tálknung tekur
Týr-bauga sá hinn skýri.

Heimildir

  • Minningargreinar. Morgunblaðið 23. febrúar 2000.
  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...