Jón Pétursson

Jón Pétursson var fæddur 21. júlí 1867 að Búðarhóli í Landeyjum og lést 18. júní 1932. Foreldrar Jóns voru Pétur Benediktsson, sem fluttist til Vestmannaeyja úr Voðmúlastaðasókn 1868 þá 27 ára að aldri, og Krístín Guðmundsdóttir, hjón í Þorlaugargerði eystra. Kona Jóns var Rósa Eyjólfsdóttir frá Kirkjubæ. Fóstursonur þeirra var Jón Guðjónsson frá Oddsstöðum.

Jón fékk byggingu fyrir eystri Þorlaugargerðisjörðinni 1905 og hafði þar búskap. Hann bjó þar til dauðadags. Auk búskaparins stundaði Jón sjó og var formaður á áraskipum. Þá var hann annálaður fyrir bátasmíðar sínar, smíðaði t.d. alla þá báta sem Ofanbyggjarar notuðu við útræði sitt í Klaufinni og Höfðavík.



Heimildir

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...