Karl Guðmundsson

Karl Guðmundsson fæddist 17. júlí 1922 og lést 25. ágúst 1987. Hann var kvæntur Símoníu Pálsdóttur. Þau bjuggu að Brekastíg 25 um miðja síðustu öld en bjuggu að Sóleyjargötu 4 seinni árin.

Karl var skipstjóri og útgerðarmaður.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Karl:

Karl veit ég kvíðinn varla,
köld þó að hríðin gnöldri.
Guðmundsson lögs á lundinn
leggur títt siglu-steggja.
Fjalari halur halar,
hafs út í bylja kafi.
Fengsæll með formanns gengi
fyrðurinn loðnung myrðir.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...