Kjartan Vilhjálmsson

Kjartan Vilhjálmsson fæddist að Múla í Vestmannaeyjum 20. mars 1905 og lést 1932. Foreldrar hans voru Vilhjálmur Ólafsson og Guðbjörg Árnadóttir og ólst hann upp með þeim að Múla.

Formennsku byrjaði Kjartan á Esther árið 1925 og síðar á Frans en hætti svo formennsku.

Kjartan lést þegar hann féll fyrir borð á Hörpu hjá Þorgeiri Jóelssyni.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 6-7 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...