Nöjsomhed

(Tilvísun frá Nøjsomhed)

Húsið Nöjsomhed stóð við Víðisveg 7. Samkvæmt manntalinu 1892 var þetta timburhús sem Bolbroe læknir byggði árið 1833. Var þetta læknissetur og var í fyrstu kallað Doctorshús. Eftir daga læknisins bjuggu margir embættismenn í húsinu. Séra Brynjólfur Jónsson bjó í húsinu þegar hann var aðstoðarprestur á árunum 1852-1858. Í húsinu bjó Aagaard sýslumaður 1875. Þetta var pakkhús frá Brydeversluninni og stóð það austan við Jómsborg. Þetta var einnig fyrsta húsnæðið til að hýsa fyrsta Barnaskólann í Vestmannaeyjum frá árinu 1880. Síðustu árin var það notað sem verbúð handa „landmönnum“, bændum og búaliðum sem voru á vertíð í Eyjum. Nöjsomhed var rifið árið 1911. Seinna reis á lóðinni húsið Stafholt en það fór undir hraun.
Sjá nánar: Blik 1960 , Nöjsomhed og Blik 1960 , Dæmi um aðbúnað vermanna.


Heimildir

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...