Páll lauk námi í trésmíði árið 1962 og í byggingartæknifræði 1967 frá Álaborg. Hann var byggingatæknifræðingur hjá ráðgjafarverkfræðifyrirtækinu Studstrup & Östgaard a/s í Álaborg á árunum 1967-1972. Páll starfaði svo sem bæjartæknifræðingur í Vestmannaeyjum árin 1972-76. Það var einmitt í gosinu og gegndi hann mikilvægu hlutverki í gosinu og eftir það. Hann tók við sem bæjarstjóri á árunum 1976-1982. Síðan þá hefur hann rekið ráðgjafar- og teiknistofu, Teiknistofa PZ, í Vestmannaeyjum.
Páll er félagsforingi skátafélagsins Faxi og er formaður Norræna félagsins í Vestmannaeyjum. Hann er ennfremur sænskur konsúll í Vestmannaeyjum.
Heimildir
- Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991.