Sigríður Friðriksdóttir

Sigríður Friðriksdóttir húsmóðir, fiskverkakona og verkstjóri fæddist að Rauðhálsi í Mýrdal 3. júlí 1908, nú búsett að Hrafnistu í Reykjavík.

Ætt og uppruni

Foreldrar hennar voru Friðrik bóndi á Rauðhálsi, f. 2. apríl 1871 á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, d. 17. nóvember 1916 á Rauðhálsi, Vigfúsar bónda á Ytri-Sólheimum, f. 30. maí 1841 á Seljalandi, d. 24. marz 1934 í Reykjavík, Þórarinssonar bónda á Seljalandi, Eyjólfssonar og konu Vigfúsar bónda á Ytri-Sólheimum, Þórdísar húsfreyju, f. 20. júní 1840 á Ytri-Sólheimum, d. 31. apríl 1912 í Reykjavík, Berentsdóttur, Sveinssonar.
Móðir Sigríðar og kona Friðriks bónda var Þórunn Sigríður húsfreyja á Rauðhálsi, f. 5. júlí 1875 í Pétursey í Mýrdal, d. 23. júlí 1959 í Eyjum, Odds bónda í Mýrdal, en síðast í Landakoti á Miðnesi, Gullbringusýslu, f. 12. september 1842 í Jónshúsi í Eyjum, Jónssonar sjómanns í Jónshúsi, f. 1816, Oddssonar og konu Odds, Steinunnar húsfreyju, síðast í Landakoti á Miðnesi, f. 30. október 1852 á Kaldrananesi í Mýrdal, d. 1894, Sigurðardóttur bónda þar, Eyjólfssonar.

Sigríður Friðriksdóttir
Sigríður Friðriksdóttir

Æviferill

Sigríður missti föður sinn frá 14 börnum er hún var 8 ára. Heimilið var leyst upp. Þegar hún var 10 ára fór hún í fóstur til hjónanna á Mosfelli í Eyjum, þeirra Jennýjar Guðmundsdóttur og Jóns Guðmundssonar. Þar ólst Sigríður upp og dvaldi, þar til hún giftist 1934.
Þau Halldór Elías hófu búskap á Mosfelli, en þá var Jón fóstri hennar látinn. Síðan eignuðust þau húsið að Heimagötu 22 og bjuggu þar til ársins 1941, er þau byggðu húsið að Helgafellsbraut 23 og þar bjuggu þau til goss 1973. Þá fluttust þau til Reykjavíkur og keyptu sér íbúð að Efstalandi 12. Þar bjuggu þau unz Halldór Elías lézt, en hún ein eftir það til ársins 2004, er hún flutti á Hrafnistu í Reykjavík. Þar býr hún nú og er vel ern að sögn.
Sigríður vann fiskvinnslustörf um 40 ára skeið, verkstjóri lengi. Þótti hún harðduglegur og traustur starfsmaður. Við handflökun var hún margra manna maki. Hún er ákveðin í skoðunum og þótti sérlega fylgin sér.
Maki (1934): Halldór Elías Halldórsson, f. 1902.
Barn (kjörbarn): Jón Berg, f. 1935.

Ættbogi í Eyjum

Systkini Sigríðar í Eyjum voru:

  1. Vigfús Friðriksson, f. 13. febrúar 1897, d. 3. júní 1918 í Eyjum.
  2. Sigurður Friðriksson útgerðarmaður, síðar verkstjóri, Hásteinsvegi 17, f. 22. ágúst 1898, d. 7. maí 1980, kvæntur Elísabet Hallgrímsdóttur.
  3. Þórunn Friðriksdóttir húsfreyja að Vestmannabraut 61, f.28. apríl 1901 (V-Skaftf. 30. apríl), d. 13. júlí 1972, kona Ingvars Þórólfssonar.
  4. Ragnhildur Friðriksdóttir húsfreyja að Brekastíg 3, Sólbergi, f. 12. júní 1902 (6. ágúst 1902 í V-Skaftf.), d. 16. ágúst 1977, kona Guðlaugs Halldórssonar.
  5. Oddsteinn Friðriksson útgerðarmaður, vélstjóri, f. 27. júní 1903, d. 21. sept 1987, kvæntur, (skildu), Þorgerði Hallgrímsdóttur, systur Elísabetar konu Sigurðar.
  6. Högni Friðriksson sjómaður, f. 2. júlí 1907, d. 17. júní 1929.
  7. Ragnheiður Friðriksdóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1912, d. 12. júlí 1984, kona Haraldar Þorkelssonar.
  8. Þórhallur Friðriksson bifreiðastjóri í Eyjum, síðar smiður í Ytri-Skógum u. Eyjafjöllum, en síðast búsettur á Selfossi, f. 3. nóv. 1913, d. 29. janúar 1999, kvæntur Elínu Þorsteinsdóttur.
  9. Þórhalla Friðriksdóttir húsfreyja, f. 15. apríl 1915, d. 7. nóvember 1999, kona Þorvalds Guðjónssonar, (skildu), síðar kona Ásmundar Friðrikssonar.

Önnur systkini Sigríðar voru:

  1. Þorbergur Friðriksson skipstjóri, f. 10. des. 1899, fórst með b/v Sviða 2. desember 1941.
  2. Árþóra Friðriksdóttir húsfreyja í Stykkishólmi, f. 23. desember 1904, d. 17. marz 1990.
  3. Kristín Friðriksdóttir húsfreyja á Norður-Hvoli í Mýrdal, f. 4. maí 1910.
  4. Ólafur Friðriksson verkamaður á Selfossi, síðast í Hveragerði, f. 29. ágúst 1911, d. 26. jan. 1984.


Heimildir:

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...