Sigurjón Sigurðsson

Sigurjón Sigurðsson, Brekkuhúsi, fæddist 6. mars 1890 í Hallgeirsey í Landeyjum og lést 8. júní 1959. Sigurjón fór til Vestmannaeyja 2 ára gamall með foreldrum sínum, Sigurði Sveinbjörnssyni og Sigurbjörgu Sigurðardóttur, og ólst upp á Fögruvöllum og síðar í Brekkuhúsi. Fyrri kona Sigurjóns var Kristín Óladóttir og eignuðust þau átta börn. Seinni kona hans var Ingibjörg Högnadóttir og eignuðust þau tvö börn.

Sigurður hóf formennsku árið 1911 á Blíðu og svo keypti hann Þór með fleirum og var formaður á honum fram yfir 1916. Eftir það var Sigurjón formaður með hina ýmsu báta fram yfir 1940.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...