| Athafnamaðurinn og skólastjóri Gagnfræðaskólans, [[Þorsteinn Víglundsson]], var stofnandi þess og ritstjóri og urðu árgangarnir alls 34. Hann lét af störfum sem skólastjóri árið 1963 og þar eftir tók að mestu við skrifunum í Blik. Þorsteinn var kosinn, einróma af [[bæjarstjórn|bæjarstjórninni]], [[heiðursborgarar|heiðursborgari]] í Vestmannaeyjum árið 1978 fyrir framlag sitt til menningarmála.
| |
| Greinar í Blik voru um menningarmál af fjölbreyttum toga en endurspegluðu þó áhugamál Þorsteins vel og í fyrstu tölublöðunum fékk Þorsteinn góða aðstoð frá nemendum sínum með skriftir. Greinarnar fjölluðu m.a. um einstaklinga, merka atburði, daglegt líf, atvinnumál, sögu, spaug og spé, bindindismál og efnisyfirlit byggðasafnsmuna.
| |