„1973 Allir í bátana/Frásagnir, greinar og viðtöl tengd Heimaeyjargosinu/Páll Pálsson Flugvélin með fjölskyldunni hvarf í mekkinum“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Merki: Breyting tekin til baka
Lína 2: Lína 2:


==Flugvélin með fjölskyldunni hvarf í mekkinum==
==Flugvélin með fjölskyldunni hvarf í mekkinum==
[[Mynd:Pall palsson-gosminning.jpg|thumb|500px|right|Fjölskyldan í mat á Hólagötu eftir gos. Muggur, Sigurbjörg, Páll Helgason, Karl, Bryndís Karlsdóttir, Páll , Brynhildur, rétt sést í Rabba. Ljósmynd/Úr einkasafni]]
[[Mynd:Pall palsson-gosminning.jpg|thumb|500px|right|Fjölskyldan í mat á Hólagötu eftir gos. Muggur, Sigurbjörg, Páll Helgason, Karl, Bryndís Karlsdóttir, Páll , Brynhildur, rétt sést í Rabba. Ljósmynd/Úr einkasafni]]



Útgáfa síðunnar 19. janúar 2025 kl. 21:38

Páll Pálsson

Flugvélin með fjölskyldunni hvarf í mekkinum

Fjölskyldan í mat á Hólagötu eftir gos. Muggur, Sigurbjörg, Páll Helgason, Karl, Bryndís Karlsdóttir, Páll , Brynhildur, rétt sést í Rabba. Ljósmynd/Úr einkasafni

Páll Pálsson Helgasonar segir að Muggur bróðir hans hafi vaknað fyrstur og vakið foreldra þeirra með þeim fréttum að komið væri eldgos. Þau ákváðu að leyfa yngri drengjunum að sofa lengur. Þeir voru síðan vaktir og farið í bíltúr að skoða gosið. Bílferðin er Páli eftirminnileg.

Þau fóru síðan niður á bryggju og þá hafði föðuramma Páls, Guðrún Stefánsdóttir, slegist í hópinn. Fáir bátar voru enn við bryggju og þegar þau ætluðu um borð í einn þeirra var þeim sagt að hann væri bara fyrir þá sem tengdust bátnum. Þau fóru því heim til ömmu hans á Heiðarvegi 20 og fengu sér hressingu. Síðan fóru þau upp á flugvöll.

„Þar sem við vorum þarna í röðinni að fara uppí flugvélina þ.e. ég, Kalli, Rabbi, mamma, amma og Billý (hundurinn okkar) er sagt við okkur að það er ekki leyfilegt að hafa hund, þá svaraði mamma, annað hvort förum við öll eða enginn. Og auðvitað fórum við um borð. Við sátum saman ég og Rabbi í einu sæti og Kalli og mamma við hliðina á okkur og Billý á gólfinu. Það voru skrítin hljóð, blanda af flugvélahljóði og drunum frá eldgosinu og síðan þessi grafarþögn hjá öllum.

Hvarf í mekkinum

Ég held að öll sætin hafi verið nýtt í flugvélinni, meira að segja sætið á klósettinu. Rétt eftir að flugvélin tók á loft hristist hún mikið og eins og við værum að lenda í einhverju drungalegu skýi, vélin tók vinstri beygju og þegar ég leit niður, út um gluggann horfði ég beint í eldglóandi sprunguna, þetta var rosalegt ég man ekki eftir að hafa verið hræddur en samt eitthvað. Ég spurði pabba seinna út í þetta. Hann sagði að hann hefði fylgst með þegar flugvélin fór í loftið til austurs með næstum því allri fjölskyldunni hans um borð. Á svipuðum tíma virðist sprunga í eldgosinum líklega opnast í sjó því mikill mökkur hefði myndast og hann hefði horft á flugvélina hverfa inní mökkinn, hann sagði líka að það hefði verið mikill léttir þegar flugvélin hefði komið út úr mekkinum.“  



Heimildir