„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1960/ Velkominn Herjólfur“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
11benedikt (spjall | framlög) (Það var villa í textanum.) |
||
| Lína 1: | Lína 1: | ||
<big><big><center>Velkominn [[Herjólfur|HERJÓLFUR]]</center></big></big><br> | <big><big><center>Velkominn [[Herjólfur|HERJÓLFUR]]</center></big></big><br> | ||
Laugardaginn 12. des. | Laugardaginn 12. des. 1959 var mikill fólksfjöldi samankominn niður á [[Básaskersbryggja|Básaskersbryggju]] hér í bæ, til þess að fagna komu hins nýja og glæsilega Vestmannaeyjaskipi Herjólfi, sem var að leggjast að bryggju hér í Eyjum í fyrsta sinn. Skipið kom frá Hollandi þar sem það var byggt, með viðkomu í Leith. Heimahöfn þessa glæsilega skips er Vestmannaeyjar. Í tilefni þessa merkisatburðar í samgöngumálum eyjanna hafði [[Sigurgeir Kristjánsson]] lögregluþjónn ort eftirfarandi kvæði, sem flutt var við komu Herjólfs.<br> | ||
[[Mynd:Hefjólfur að leggjast að briggju hér í fyrsta sinn.png|300px|thumb|Hefjólfur að leggjast að briggju hér í fyrsta sinn.- | [[Mynd:Hefjólfur að leggjast að briggju hér í fyrsta sinn.png|300px|thumb|Hefjólfur að leggjast að briggju hér í fyrsta sinn.- | ||
Núverandi breyting frá og með 20. febrúar 2025 kl. 10:08
Laugardaginn 12. des. 1959 var mikill fólksfjöldi samankominn niður á Básaskersbryggju hér í bæ, til þess að fagna komu hins nýja og glæsilega Vestmannaeyjaskipi Herjólfi, sem var að leggjast að bryggju hér í Eyjum í fyrsta sinn. Skipið kom frá Hollandi þar sem það var byggt, með viðkomu í Leith. Heimahöfn þessa glæsilega skips er Vestmannaeyjar. Í tilefni þessa merkisatburðar í samgöngumálum eyjanna hafði Sigurgeir Kristjánsson lögregluþjónn ort eftirfarandi kvæði, sem flutt var við komu Herjólfs.

Við bjóðum þig velkominn , Herjólfur heim
til hafnar við norðlægar slóðir.
Við biðum þín lengi, og þökk veri þeim,
sem þér voru hollir og góðir.
Þú komst, þó að nótt væri niðdimm og löng,
og nú skal þér fagnað með ræðum og söng.
Þeir vissu það áður, sem ýttu út vör
við útsker hjá rjúkandi hrönnum,
ef syrti í álinn, þá seinkaði för
hjá sjóhröktum erfiðismönnum.
Það var eins og brimhjóðið boðaði grand,
er boðarnir féllu við Eyjar og sand.
Loks mótaði þekkingin tækninnar tök
á tímum, sem við stöndum nærri.
Þá rættust þeir draumar, sem vörðust í vök,
og víst eru sigrarnir stærri!
Í dag birtist Herjólfur, skínandi skeið,
vort skip, er gegn ólgunni klýfur sér leið.
Fylgi þér, Herjólfur, hamingjudís
um hafið á framtíðarleiðum.
Þín sigling sé örugg og vegleg og vís,
þó vindarnir blási í reiðum.
Svo eflir þú tengslin við Eyjar og land,
þótt oft falli boði við Landseyjasand.