„Bergþóra Þórhallsdóttir“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
| Lína 4: | Lína 4: | ||
Bergþóra á þrjú systkini, [[Ingibjörg Þórhallsdóttir|Ingibjörgu]], [[Jón Óskar Þórhallsson|Jón Óskar]] og [[Svandís Þórhallsdóttir|Svandísi]].<br> | Bergþóra á þrjú systkini, [[Ingibjörg Þórhallsdóttir|Ingibjörgu]], [[Jón Óskar Þórhallsson|Jón Óskar]] og [[Svandís Þórhallsdóttir|Svandísi]].<br> | ||
Bergþóra er í sambúð með Baldri Dýrfjörð og á hún fjögur börn.<br> | Bergþóra er í sambúð með Baldri Dýrfjörð og á hún fjögur börn.<br> | ||
Börn hennar eru Gísli Steinar f. 1984, Svala f. 1987, Telma f. 1993 og Björk f. 1995. Bergþóra ólst upp á [[ | Börn hennar eru Gísli Steinar f. 1984, Svala f. 1987, Telma f. 1993 og Björk f. 1995. Bergþóra ólst upp á [[Reykir|Reykjum]] við [[Vestmannabraut]] en eftir að hún eignaðist sjálf fjölskyldu bjó hún meðal annars á [[Birkihlíð]] og í [[Hrauntún]]i. | ||
Bergþóra lauk námi í [[Barnaskóli Vestmannaeyja|Barnaskóla Vestmannaeyja]] og fór síðar í Kvennaskólann í Reykjavík. Að loknu stúdentsprófi lauk hún kennaraprófi og starfaði lengi sem slíkur í [[Hamarsskóli Vestmannaeyja|Hamarsskóla]]. Þegar [[Viska]] símenntunarstöð var stofnuð var Bergþóra ráðin forstöðumaður þar sem hún starfaði til ársins 2005. | Bergþóra lauk námi í [[Barnaskóli Vestmannaeyja|Barnaskóla Vestmannaeyja]] og fór síðar í Kvennaskólann í Reykjavík. Að loknu stúdentsprófi lauk hún kennaraprófi og starfaði lengi sem slíkur í [[Hamarsskóli Vestmannaeyja|Hamarsskóla]]. Þegar [[Viska]] símenntunarstöð var stofnuð var Bergþóra ráðin forstöðumaður þar sem hún starfaði til ársins 2005. | ||
Núverandi breyting frá og með 23. apríl 2025 kl. 20:37
Bergþóra Þórhallsdóttir fæddist 13. febrúar 1964.
Foreldrar hennar eru Þórhallur Ármann Guðjónsson og Svala Ingólfsdóttir sem er látin.
Bergþóra á þrjú systkini, Ingibjörgu, Jón Óskar og Svandísi.
Bergþóra er í sambúð með Baldri Dýrfjörð og á hún fjögur börn.
Börn hennar eru Gísli Steinar f. 1984, Svala f. 1987, Telma f. 1993 og Björk f. 1995. Bergþóra ólst upp á Reykjum við Vestmannabraut en eftir að hún eignaðist sjálf fjölskyldu bjó hún meðal annars á Birkihlíð og í Hrauntúni.
Bergþóra lauk námi í Barnaskóla Vestmannaeyja og fór síðar í Kvennaskólann í Reykjavík. Að loknu stúdentsprófi lauk hún kennaraprófi og starfaði lengi sem slíkur í Hamarsskóla. Þegar Viska símenntunarstöð var stofnuð var Bergþóra ráðin forstöðumaður þar sem hún starfaði til ársins 2005.
Þegar Bergþóra var yngri lék hún handbolta með Knattspyrnufélaginu Tý. Bergþóra var félagi í Kaffihúsakór Landakirkju og var virk í starfi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.
Árið 2006 kennir Bergþóra við Giljaskóla á Akureyri þar sem hún er búsett.