Brimhólalaut

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. nóvember 2026 kl. 09:08 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. nóvember 2026 kl. 09:08 eftir Daniel (spjall | framlög) (Ný síða: '''Brimhólalaut,''' öðru nafni Brimhólaflöt, er svæði vestan Brimhóla við Illugagötu þar sem Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja er staðsett. Áður en íþróttamiðstöðin var byggð og vígð árið 1976 var fjölbreytt notkun á svæðinu langt aftur. Á nítjándu öld var svæðið notað af Herfylkingunni því að þar ,,voru sléttar og harðar valllendisgrundir og mjög hentugar fyrir æfingar." Þann 17. júní 1911 e...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Brimhólalaut, öðru nafni Brimhólaflöt, er svæði vestan Brimhóla við Illugagötu þar sem Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja er staðsett. Áður en íþróttamiðstöðin var byggð og vígð árið 1976 var fjölbreytt notkun á svæðinu langt aftur.

Á nítjándu öld var svæðið notað af Herfylkingunni því að þar ,,voru sléttar og harðar valllendisgrundir og mjög hentugar fyrir æfingar." Þann 17. júní 1911 efndu Vestmannaeyingar efnt til samkomu vestur á Brimhólaflöt til þess að minnast aldarafmælis Jóns Sigurðssonar. Hornaflokkur Vestmannaeyja (upphaflegt heiti á Lúðrasveit Vestmannaeyja) lék þar nokkur tónverk.

Þrettándagleði var haldin á svæðinu á árunum á seinni hluta nítjándu aldar. Gengið var um bæinn og safnað fólki saman með trommuslætti. Segir svo í Ritverki Árna Árnasonar:

Í blysförinni sjálfri var gengið inn á Brimhóla, og gengu tveir og tveir saman. Allir báru blys og logaði glatt í þeim. Þegar svo komið var inn á Brimhólaflöt, var þar tendraður bálköstur mikill, og gengu blysberar í hring kringum bálið og sungu við raust álfasöngva og fleira og dönsuðu margskonar vikivakadansa. Var spilað undir á harmoniku til þess að leiða og raddfesta sönginn. Þetta voru fólkinu ógleymanlegar skemmtanir, enda voru þær mjög fjölsóttar af ungum og gömlum.

Á fyrri hluta tuttugustu aldar var ,,siður unga fólksins að fara inn í Brimhólalaut um björt sumarkvöldin og dansa þar eftir grammófónmúsík eða fara í ýmsa leiki." Íþróttaiðkun fór þar líka snemma fram. Í Þjóðhátíðarblaði Týs árið 1963 sagði Júlíus Snorrason svo frá:

Þannig vildi til, að nokkrir Þórsstrákar höfðu keypt sér kastáhöld, og voru að spreyta sig inni í Brimhólalaut. Ég varð strax hrifinn af kringlunni, en átti enga. Datt okkur félögum í hug að nota mætti járntannhjól úr blökk í stað kastkringlunnar, það var að vísu ekki vel lagað til flugs, an mátti nota hana til æfinga. Á þessu hjóli æfðum við okkur í lautinni. Það mátti eins spreyta sig á því sem öðru.

Nautgripum var einnig beitt á svæðinu auk þess sem þar var leikvöllur fyrir börn.



Heimildir