Kervíkurfjall

From Heimaslóð
Revision as of 22:31, 5 November 2007 by Frosti (talk | contribs) (lagaði tengil)
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigation Jump to search

Kervíkurfjall stendur suður af Sæfjalli

Í fallegu veðri er útsýni af Kervíkurfjalli sérlega tignarlegt. Úti á Stakkabót liggja Litli Stakkur og Stóri Stakkur. Jarðfræðingar telja „Bótina“ vera risastóran eldgíg, þar sem „Stakkarnir“ eru væntanlega gígtappinn. Í norðri eru Sæfjall og Lambaskorur. Milli Kervíkurfjalls og Litlahöfða er Kópavík, út af víkinni kúrir Landstakkur.