Krókhús

From Heimaslóð
Revision as of 13:57, 3 August 2014 by Viglundur (talk | contribs)
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigation Jump to search

Krókhús var tómthús nefnt í manntalinu 1835.
Þar bjuggu þá Helgi Jónsson, síðar bóndi í Draumbæ og Ragnhildur Jónsdóttir húsfreyja með barni sínu Bjarna Helgasyni. Tveim árum fyrr fæddist þeim sonur í Gominorra (svo skrifað), sem á etv. að vera Gomorra, sbr. Sódóma og Gomóra.
Nöfn sumra tómthúsanna virðast hafa tekið stöðugum breytingum og nefnst eftir húsbændum hverju sinni. Eitt árið bjó Björn í Hjalli, en næst bjó hann í Björnshjalli. Svo er einnig um Einarshjall og fleiri tómthús.
Nafnið Tómthús er talsvert notað sem sérnafn hjá prestunum, en er þó líklega nafn almenns eðlis.


Heimildir