Hjörtur Einarsson

Hjörtur Einarsson, Geithálsi, fæddist 19. ágúst 1887 að Þorlaugargerði í Vestmannaeyjum og lést 30. desember 1975. Foreldrar hans voru Einar Sveinsson og Guðríður Helgadóttir. Formennsku hóf Hjörtur árið 1912 á Frið og var formaður þar til 1919 en þá lét hann af formennsku. Eftir það var hann vélamaður í fjölda vertíða.

Hjörtur bjó á Geithálsi við Herjólfsgötu en bjó á elliheimilinu Skálholti við Urðaveg seinni árin.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...