Axel Valdemar Gunnlaugsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Axel Valdimar Gunnlaugsson)
Fara í flakk Fara í leit

Axel Valdemar Gunnlaugsson framkvæmdastjóri upplýsingatækni há Atnorth, fæddist 11. júní 1958.
Foreldrar hans Gunnlaugur Jón Ólafur Axelsson, húsgagnasmiður, framkvæmdastjóri, f. 31. maí 1940, d. 16. október 2006, og kona hans Fríða Dóra Jóhannsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, veitingakona, f. 18. mars 1939, d. 28. maí 2022.

Börn Fríðu Dóru og Gunnlaugs:
1. Axel Valdemar Gunnlaugsson, f. 11. júní 1958. Kona hans Fríða Sigurðardóttir.
2. Anna Dóra Gunnlaugsdóttir, f. 17. desember 1960, d. 29. september 1965.
3. Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir, f. 14. nóvember 1964. Maður hennar Guðjón Örn Guðjónsson.
4. Halldór Gunnlaugsson, f. 10. apríl 1973. Barnsmóðir hans Árdís Ármannsdóttir. Kona hans Lovísa Guðbjörg Ásgeirsdóttir.

Þau Fríða giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Garðabæ.

I. Kona Axels Valdimars er Fríða Sigurðardóttir úr Rvk, húsfreyja, umsjónarmaður prófa hjá HÍ, f. 6. janúar 1960. Foreldrar hennar Guðlaug Benediktsdóttir, f. 19. apríl 1937, d. 9. september 1998, og Sigurður Jónsson, f. 31. desember 1938, d. 11. janúar 2013.
Börn þeirra:
1. Anna Dóra Axelsdóttir, f. 19. ágúst 1982.
2. Andri Freyr Axelsson, f. 20. október 1988.
3. Aníta Guðlaug Axelsdóttir, f. 1. október 1992.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.