Kolbrún Óladóttir (verkstjóri)
Kolbrún Óladóttir húsfreyja, fiskimatsmaður, verkstjóri í Eyjum fæddist 19. ágúst 1965 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Óli Einar Andersen Adolfsson frá Brautarholti við Landagötu 3b, bóndi, bifreiðastjóri, rúturekandi, leiðsögumaður, f. 7. mars 1941, og kona hans Valgerður Ragnarsdóttir, húsfreyja, f. 7. júlí 1938 í Eyjum.
Þau Finnbogi Páll giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa við Birkihlíð 3.
I. Maður Kolbrúnar er Finnbogi Páll Finnbogason fiskverkamaður, f. 25. maí 1965 í Rvk. Foreldrar hans Finnbogi Þorsteinsson innkaupastjóri, f. 2. desember 1920, d. 13. maí 1991, og kona hans Ísalína Súsanna Knútsdóttir Þorsteinsson húsfreyja, f. 25. nóvember 1923 í Færeyjum, d. 16. júní 1992.
Börn þeirra:
1. Egill Finnbogason, f. 12. jan. 1984.
2. Tinna Karítas Finnbogadóttir, f. 27. mars 1996.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.