Reykholt (eldra)
Jump to navigation
Jump to search
Húsið Reykholt, hið eldra, stóð við Urðaveg 15. Jón Ingileifsson og Elín Einarsdóttir reistu það árið 1914. Siðan bjuggu þar Unnur Jónsdóttir, dóttir þeirra og eiginmaður Karl Guðmundsson frá árinu 1930 eftir að Elín Einarsdóttir, móðir Unnar dó.
Árið 1953 bjuggu þar Björn Kristjánsson og Guðbjörg Gunnlaugsdóttir ásamt börnum
Í húsinu bjuggu hjónin Jón Ingólfsson og Halldóra Hallbergsdóttir og dætur þeirra Hallbjörg, Berglind og Stella samkvæmt manntali des 1972.
Þegar byrjaði að gjósa bjuggu Grétar Skaftason og kona hans Guðný Sólveig Elíasdóttir í húsinu ásamt barni sínu.
Myndir
-
Reykholt fyrir miðri mynd
Heimildir
- Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.
- Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja, 1973.
- Húsin undir hrauninu, haust 2012.