Sigrún Elsa Smáradóttir

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search
Sigrún Elsa

Sigrún Elsa Smáradóttir er fædd 27. nóvember 1972. Foreldrar hennar eru Ragnheiður Brynjúlfsdóttir og Smári Eyfjörð Grímsson rafvirki. Á meðan þau hjón voru búsett í Vestmannaeyjum bjuggu þau lengi vel á Nýjabæjarbraut 1. Starfaði Ragnheiður meðal annars sem skólaritari í Hamarsskóla og Smári sem rafvirki í Vinnslustöðinni. Sigrún Elsa á yngri tvíburasystur, Steinunni Lilju og Sigríði Bríet. Sigrún Elsa er í sambúð með Vilhjálmi Goða Friðrikssyni tónlistarmanni. Sigrún Elsa á þrjú börn úr fyrra sambandi með Róberti Marshall fjölmiðlamanni.

Sigrún Elsa er matvælafræðingur að mennt og hefur MBA gráðu í viðskiptastjórnun. Sigrún hefur starfað sem markaðsstjóri hjá Austurbakka sem nú er Icepharma í um áratug. Þó tók hún sér leyfi frá störfum fyrir alþingiskosningarnar 2003 þegar hún starfaði sem pólitískur aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Kjörtímabilið 2002-2006 er þriðja kjörtímabil Sigrúnar Elsu sem varaborgarfulltrúa í Reykjavík. Fyrstu tvö kjörtímabilin sat hún fyrir Reykjavíkurlistann og það þriðja fyrir Samfylkinguna. Á meðan Reykjavíkurlistinn var við völd í Reykjavík var Sigrún Elsa varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, formaður samstarfsnefndar um lögreglumálefni og sat hún einnig í menntaráði Reykjavíkur, svo fátt eitt sé nefnt.