Ágúst Bjarnason (Svalbarði)
Ágúst Bjarnason frá Svalbarði, bifreiðastjóri, bæjargjaldkeri, ríkisbókari fæddist 18. ágúst 1910 í Godthaab og lést 3. janúar 1993.
Foreldrar hans Bjarni Jónsson faktor á Akranesi, síðar verslunarmaður, bókhaldari í Eyjum, f. 9. júní 1880, d. 2. desember 1962, og kona hans Anna Tómasdóttir húsfreyja, f. 28. febrúar 1879, d. 17. apríl 1956.
Börn Önnu og Bjarna:
1. Haraldur Bjarnason skrifstofumaður, f. 1. júní 1908 á Akranesi, d. 23. janúar 1955.
2. Ágúst Bjarnason bifreiðastjóri, bæjargjaldkeri, ríkisbókari, f. 18. ágúst 1910 í Godthaab, d. 3. janúar 1993.
Fósturbarn þeirra var sonur Haraldar sonar þeirra:
3. Sverrir Haraldsson listmálari, f. 18. mars 1930, d. 22. febrúar 1985.
Þau Fanney giftu sig, eignuðust eitt barn.
Þau Aðalheiður giftu sig, eignuðust ekki börn saman, en hún hafði átt tvö lifandi börn frá fyrra sambandi og fóstraði Hörð son Ágústs.
I. Kona Ágústs var Fanney Jónsdóttir úr Rvk, húsfreyja, f. 29. janúar 1913, d. 31. júlí 1940. Foreldrar hennar voru Jón Tómasson verkamaður, f. 13. ágúst 1881 á Berustöðum í Ásahreppi, Rang., d. 13. maí 1961, og kona hans Guðrún Sigríður Hákonardóttir frá Háteigi á Akranesi, húsfreyja, f. 7. september 1883, d. 30. desember 1969.
Barn þeirra:
1. Hörður Ágústsson kaupmaður, verkamaður f. 22. ágúst 1932, d. 22. febrúar 2008.
II. Kona Ágústs var Steinunn Aðalheiður Árnadóttir frá Burstafelli, húsfreyja, verslunarmaður, f. 7. janúar 1913, d. 20. október 1987.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.