Þórir Ólafsson (svæðisstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Þórir Ólafsson)
Fara í flakk Fara í leit

Þórir Ólafsson, svæðisstjóri hjá Micatrasig í Svíþjóð, stundar nú smíðavinnu hér á landi, fæddist 21. júní 1966.
Foreldrar hans Ólafur Oddur Sveinbjörnsson, vélstjóri, múrarameistari, f. 5. júlí 1938, d. 9. nóvember 2003, og Kristín Georgsdóttir, f. 14. nóvember 1939.

Börn Kristínar og Ólafs:
1. Georg Óskar Ólafsson málarameistari, f. 12. janúar 1957. Kona hans Hera Dís Karlsdóttir.
2. Oddný Bára Ólafsdóttir verslunarkona, f. 23. október 1960. Maður hennar Gunnar Kristjánsson.
3. Vignir Ólafsson tónlistarkennari, málari, f. 14. júní 1964. Fyrrum kona hans Elísabet Arietta. Kona hans Ásgerður Hrönn Sveinsdóttir.
4. Þórir Ólafsson svæðisstjóri í Svíþjóð, f. 21. júní 1966. Fyrrum kona hans Guðmunda Jóna Hlífarsdóttir. Sambúðarkona hans Rakel Óskarsdóttir.

Þau Guðmunda Jóna giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau skildu.
Þau Rakel hófu sambúð, hafa ekki eignast börn saman, en hún á tvö börn frá fyrra sambandi. Þau búa í Kópavogi.

I. Fyrrum kona Þóris er Guðmunda Jóna Hlífarsdóttir frá Seyðisfirði, húsfreyja, f. 26. desember 1967. Foreldrar hennar Hlífar Sigurjónsson, f. 31. október 1935, d. 11. janúar 1969, og Ágústa Ásgeirsdóttir, f. 24. ágúst 1928, d. 20. janúar 2011.
Börn þeirra:
1. Hlíf Ösp Þórisdóttir, f. 23. júlí 1985.
2. Daníel Þórisson, f. 1. október 1989.
3. Hilmir Þór Þórisson, f. 30. apríl 1999.

II. Sambúðarkona Þóris er Rakel Óskarsdóttir, húsfreyja, bókari, f. 29. mars 1966.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.