Þorvarður Ægir Hjálmarsson
Þorvarður Ægir Hjálmarsson húsasmíðameistari fæddist 9. október 1962.
Foreldrar hans Hjálmar Jóhann Níelsson, f. 15. nóvember 1930, d. 20. október 2009, og Anna Þorvarðardóttir, f. 28. október 1935, d. 23. júní 2013.
Þau Sólveig Sól giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau skildu.
Þau Magnea giftu sig, hafa ekki eignast börn saman, en hún á tvö börn frá fyrra sambandi. Þau búa við Hólagötu 5.
I. Fyrrum kona Þorvarðar er Sólveig Sól Einarsdóttir, f. 15. febrúar 1965. Foreldrar hennar Einar Þór Halldórsson, f. 5. október 1935, d. 12. desember 1981, og Kristín Rósa Skarphéðinsdóttir, f. 11. febrúar 1942, d. 3. mars 2024.
Börn þeirra:
1. Einar Óli Þorvarðarson, f. 9. febrúar 1985.
2. Anna Silvía Þorvarðardóttir, f. 2. ágúst 1988.
3. Rúnar Leó Þorvarðarson, f. 30. júní 1995.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.