Breki Örn Hjaltason
Breki Örn Hjaltason vélvirki, vinnur við viðgerðir og flutninga hjá
DVG flutningafélagi, fæddist 2. janúar 1997.
Foreldrar hans Hjalti Hávarðsson stýrimaður, f. 10. janúar 1957, og kona hans Sigríður Garðarsdóttir húsfreyja, verslunarstjóri, f. 25. janúar 1959, d. 8. mars 2016.
Börn Sigríðar og Hjalta:
1. Hávarður Þór Hjaltason kerfisstjóri í Reykjavík, f. 17. júní 1975. Kona hans Alina Marin Hjaltason.
2. Erna Dögg Hjaltadóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 26. febrúar 1992. Sambúðarmaður hennar Unnar Óli Ólafsson.
3. Breki Örn Hjaltason vélvirki, f. 2. janúar 1997. Fyrrum sambýliskona hans Amalía Duffield.
Þau Amalía hófu sambúð, eignuðust ekki börn saman. Þau skildu.
I. Fyrrum sambúðarkona Breka Arnar er Amalía Duffield, f. 1995.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Breki Örn.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.