Guðbjörg Guðmannsdóttir
Fara í flakk
Fara í leit
Guðbjörg Guðmannsdóttir húsfreyja, kennari, verkefnastjóri hjá Grunnskóla Vestmannaeyja, atvinnumaður í handknattleik í Danmörku 2006-2008, fæddist 15. maí 1980.
Foreldrar hennar Guðmann Magnússon skipstjóri, f. 24. ágúst 1955, og kona hans Sigríður Hreinsdóttir húsfreyja, f. 28. september 1958.
Þau Óskar giftu sig eignuðust þrjú börn. Þau búa við Hásteinsveg 49.
I. Maður Guðbjargar er Óskar Jósúason grunnskólakennari, aðstoðarskólastjóri, nú starfsmaður Laxeyjar, f. 10. maí 1979.
Börn þeirra:
1. Kristín Klara Óskarsdóttir, f. 2009.
2. Jósúa Steinar Óskarsson, f. 2011.
3. Nóel Gauti Óskarsson, f. 2017.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðbjörg.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.