Helgi Einarsson (Illugagötu)
Helgi Einarsson rennismíðameistari fæddist 9. desember 1963.
Foreldrar hans Einar Magnús Erlensson húsgagnasmiður, f. 11. janúar 1932, d. 19. júlí 2017, og kona hans Ása Ingibergsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 13. ágúst 1934.
Börn Ásu og Einars:
1. Ingibergur Einarsson, f. 9. febrúar 1955. Kona hans Sigríður Kristín Finnbogadóttir.
2. Sigríður Einarsdóttir, f. 29. desember 1957. Fyrrum maður hennar Gunnar Marel Eggertsson. Fyrrum sambúðarmaður Sigtryggur H. Þrastarson. Fyrrum sambúðarmaður Páll Rúnar Pálsson. Maður hennar Baldvin Örn Arnarson.
3. Ágúst Einarsson rafvirki, f. 9. desember 1960. Kona hans Iðunn Dísa Jóhannesdóttir.
4. Helgi Einarsson, f. 9. desember 1963. Sambúðarkona Agnes Bára Benediktsdóttir.
5. Hrefna Einarsdóttir, f. 3. september 1966. Maður hennar Pétur Jónsson.
Helgi eignaðist barn með Kristínu Björgu 1984.
Þau Agnes Bára giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa við Heiðarveg 48.
I. Barnsmóðir Helga er Kristín Björg Konráðsdóttir úr Garðinum, f. 10. nóvember 1961.
Barn þeirra:
1. Björg Ólöf Helgadóttir, f. 2. nóvember 1984.
II. Kona Helga er Agnes Bára Benediktsdóttir frá Sauðárkróki, húsfreyja, fiskverkakona, f. 29. október 1970. Foreldrar hennar Benedikt Agnarsson, f. 8. febrúar 1940, og María Kristjana Angantýsdóttir, f. 8. nóvember 1948, d. 7. mars 2006.
Börn þeirra:
1. Aron Hugi Helgason, f. 17. september 1992 á Sauðárkróki.
2. Arney Lind Helgadóttir, f. 27. ágúst 1994 í Eyjum.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Helgi.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.