Hjörtur Ólafsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Hjörtur Ólafsson.

Hjörtur Ólafsson tölvunarfræðingur fæddist 18. ágúst 1955 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Ólafur Oddgeirsson rafvirkjameistari, f. 30. mars 1929, og kona hans Ragna Lísa Eyvindsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 6. mars 1934 á Siglufirði.

Börn Rögnu Lísu og Ólafs:
1. Eyvindur Ólafsson rafvirki, f. 25. desember 1952 í Eyjum. Barnsmæður hans hans Aðalheiður Tryggvadóttir og Sólveig Kristjánsdóttir. Kona hans Sigríður Ragnheiður Jónsdóttir.
2. Hjörtur Ólafsson tölvunarfræðingur, f. 18. ágúst 1955 í Eyjum. Fyrrum kona hans Gunnur Inga Einarsdóttir. Kona hans Svandís Ingimundardóttir.
3. Hlynur Ólafsson grafískur hönnuður, f. 12. ágúst 1956 í Eyjum. Kona hans Þórdís Magnúsdóttir.
4. Ásta Katrín Ólafsdóttir húsfreyja, f. 25. desember 1958 í Eyjum. Maður hennar Jóhannes Guðmundsson.
5. Lilja Björk Ólafsdóttir, f. 19. ágúst 1962 í Eyjum. Maður hennar Óskar Óskarsson.
6. Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona, f. 24. ágúst 1964 í Eyjum. Maður hennar Andri Örn Clausen, látinn.

Þau Gunnur Inga giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau skildu.
Þau Svandís giftu sig, eignuðust ekki börn saman. Þau skildu.

I. Fyrrum kona Hjartar er Gunnur Inga Einarsdóttir húsfreyja, f. 3. mars 1955. Foreldrar hennar Einar Ólafur Óskar Einarsson, f. 17. mars 1917, d. 17. nóvember 2004, og Jónfríður Gunnarsdóttir, f. 21. september 1922, d. 12. mars 2009.
Börn þeirra:
1. Einar Már Hjartarson, f. 10. júlí 1980.
2. Oddgeir Hjartarson, f. 23. mars 1987.
3. Fríða Sóley Hjartardóttir, f. 13. nóvember 1991.

II. Fyrrum kona Hjartar er Svandís Ingimundardóttir úr Kópavogi, kennari, skólastjóri, námsráðgjafi, f. 5. ágúst 1960. Foreldrar hennar Ingimundur Guðmundsson, f. 17. ágúst 1930, d. 11. janúar 2024, og Ásdís Ólafsdóttir, f. 8. desember 1932, d. 26. júní 2000.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.