Jóhanna Fannarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Fannarsdóttir fiskvinnslukona, verslunarmaður fæddist 30. ágúst 1974.
Foreldrar hennar voru Fannar Óskarsson, sjómaður, verkamaður, f. 21. júní 1939 í Rvk, d. 28. maí 1998 í Eyjum, og kona hans Helga Sigtryggsdóttir, frá Siglufirði, húsfreyja, verkakona, starfsmaður Hrafnistu, f. 5. júlí 1946.

Börn þeirra:
1. Jósebína Ósk Fannarsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 27. maí 1966. Fyrrum maður hennar Svavar Valtýr Stefánsson.
2. Elísabet Fanney Fannarsdóttir, f. 7. janúar 1968. Maður hennar Stefnir Davíðsson.
3. Halldóra Steinunn Fannarsdóttir sjókona, f. 29. ágúst 1973, ógift.
4. Jóhanna Fannarsdóttir verslunarmaður, f. 30. ágúst 1974, óg.
Dóttir Helgu og kjördóttir Fannars:
5. Sandra Snæborg Fannarsdóttir innkaupastjóri, f. 23. september 1964, d. 18. mars 2024. Fyrrum sambúðarmaður Jón Kristbjörn Jónsson.

Jóhanna er ógift og barnlaus. Hún býr á Selfossi.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.