Sigurveig Helga Hafsteinsdóttir
Sigurveig Helga Hafsteinsdóttir húsfreyja, þroskaþjálfi fæddist 9. september 1951 að Litlu-Heiði.
Foreldrar hennar Hafsteinn Júlíusson múarameistari frá Stafholti, f. 8. júní 1928, d. 15. febrúar 1990, og kona hans María Stefanía Björnsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja, saumakona, f. 3. september 1931, d. 25. október 2009.
Börn Maríu og Hafsteins:
1. Sigurveig Helga Hafsteinsdóttir húsfreyja, þroskaþjálfi, f. 9. september 1951 að Litlu-Heiði. Maður hennar Bjarni Ragnarsson.
2. Eiríksína Kristbjörg Hafsteinsdóttir húsfreyja, sjúkraþjálfari, f. 20. júní 1955 að Boðaslóð 26. Maður hennar Óskar Sverrisson.
3. Guðný Hafsteinsdóttir húsfreyja, kennari, f. 19. júlí 1956 að Boðaslóð 26. Sambúðarmaður hennar Jóhannes Sveinsson.
4. Sigurður Hafsteinsson byggingatæknifræðingur, f. 3. ágúst 1959 að Boðaslóð 26. Kona hans Svava Aldís Viggósdóttir.
5. Júlíus Geir Hafsteinsson trésmiður, f. 1. janúar 1963 að Boðaslóð 26. Kona hans Margrét Herdís Guðmundsdóttir.
6. Þröstur Hafsteinsson blikksmiður, f. 20. janúar 1964. Kona hans Hrafnhildur Karlsdóttir.
Þau Bjarni giftu sig 1975, eignuðust tvö börn. Sigurveig Helga býr í Kópavogi.
I. Maður Sigurveigar Helgu var Bjarni Ragnarsson framleiðslustjóri, rekstrarstjóri, sölustjóri, f. 27. nóvember 1950, d. 25. nóvember 2010. Foreldrar hans Ragnar Þorsteinsson vélvirki, f. 4. nóvember 1934, og Steinvör Bjarnadóttir húsfreyja, saumakona, f. 2. ágúst 1930, d. 5. mars 2020.
Börn þeirra:
1. María Bjarnadóttir, f. 31. mars 1975.
2. Steinar Bjarnason, f. 3. nóvember 1980.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning Bjarna.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.